Matargatið
13.2.2008 05:14:37 / matargatid

Pizzur og pasta

Einfaldur og góður pastaréttur (af barnalandi)

2 hvítlauksrif
1 laukur
2 dósir niðursoðnir tómatar
salt
svartur pipar úr kvörn
ferskur basil

pasta að eigin vali, gott að hafa t.d. ostafyllt tortellini.

Ferskur parmesan til að rífa yfir.

Saxa lauk og hvítlauk mjög smátt, steikja upp úr smöri OG olíu (gefur gott bragð;)
hella safanum af tómötunum og saxa bætir út í pottinn
krydda m. salti og pipar. 

Rífa vel af parmesan ostinum og strá basil yfir áður en þetta er borið fram.
 

 

 

Pasta með beikoni, papriku og sveppum

 

Hráefni

  • 350 g pasta , t.d. skeljar
  • 200 g beikon , magurt, í sneiðum
  • ólífuolía ef þarf
  • 1 hvítlauksgeiri , saxaður
  • 1 blaðlaukur , hvíti hlutinn
  • 2-3 paprikur , fræhreinsaðar og skornar í bita
  • 100 g sveppir , skornir í sneiðar
  • 2-3 tómatar , saxaðir
  • 1 tsk oregano
  • 1 tsk basilíka
  • pipar , nýmalaður
  • salt
  • 200 ml tómatmauk (puré;)
  • 100 ml soð eða vatn
  • ½ tsk sykur

Leiðbeiningar

Pastað soðið samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Beikonið skorið í bita og steikt á pönnu þar til fitan er bráðnuð og það orðið stökkt. Þá er það tekið af með gataspaða og geymt. Svolítilli ólífuolíu bætt á pönnuna ef þarf. Blaðlaukurinn skorinn í 6-10 cm búta og þeir síðan í ræmur. Settur á pönnuna ásamt hvítlauknum og steiktur við fremur vægan hita í nokkrar mínútur. Þá er papriku og sveppum bætt á pönnuna, steikt áfram í 3-4 mínútur og hrært oft. Tómötunum bætt á pönnuna ásamt kryddinu og 2-3 mínútum síðar tómatmauki, vatni og sykri. Hitað að suðu og látið malla í um 5 mínútur. Þegar pastað er soðið er því hellt í sigti og látið renna af því. Sett í skál, beikoninu hrært saman við og sósunni hellt yfir.

  

                        (Uppskrift fengin á gestgjafinn.is)

 

 

 

Pizzadeig

½ líter af vatni- volgt
250 ml af olíu
125 ml pilsner
1250 gr hveiti
15 gr sykur 1 msk
10 gr salt 1 tsk salt
3-4 tsk tsg ger


Setja vatnið í hrærivélaskálina, gerið útí,... leysa upp gerið... setja svo pilsner og olíuna

Setja svo hveitið, salt og sykur og hnoðaða ca 15 mínútur í hrærivél
Lægsta hraða

Baka við 220 gr hita þangað til tilbúið

Nær í 5 16" pizzur

 

Gerði bara helminginn af þessari uppskrift og setti ofan á eina pitsuna 4 hvítlauksrif, 4 msk matarolíu og 1 tsk salt. Rifin voru fínsöxuð og allt hrært saman og skelt ofan á og svo pitsuostur yfir. Þetta var alveg geðveikt.

Pasta Carbonara
  • Pasta Tagliatelle c.a 250-300gr
  • 3 beikonstimlar (skornir niður í bita)
  • 1 egg
  • 1/2 l. Matreiðslurjómi
  • 2 kjúklingateningar
  • sósulitur
Pastað er sett í pott og soðið. Á meðan steikiði beikonið og setjið svo eggið yfir og hrærið strax í því(það á sem sagt ekki að spælast). Næst helliði rjómanum.Teningarnir eru settir í glas með vatni og látnir blandast saman við það og því er svo hellt útí.nokkrir dropar af sósulit gerir fallegan lit. Síðan er pastanu bætt út í og þetta látið standa í smá stund með lok yfir og á kaldri hellu. Þessi er fyrir svona 3-4 fullorðna.

Pylsupasta a la Inga Sigga

2-4 pylsur brytjaðar

4-6 skinkusneiðar brytjaðar í teninga

hálfur laukur smátt brytjaður

hálf græn paprika brytjuð

og/eða annað grænmeti eftir smekk

1/4 dós skinkumyrja

1/2 til 1 dl mjólk

1/2 dós 10% sýrður rjómi

Eitt stykki lambakraftur eða grænmetiskraftur

krydd, t.d. season all

Aðferð: Pylsur, skinka, laukur og paprika steikt á pönnu. Svo er pannan tekin af hitanum og teningi, skinkumyrju, mjólk, sýrðum rjóma og kryddi hrært við hitt. Munið að setja ekki of mikla mjólk, bara svona til að sósan verði ekki of þunn. Mér finnst hún eiga að vera svona aðeins þynnri en uppstúf. Svo er pannan sett aftur á hitann og látið malla í fimm mínútur og hrært annað slagið í. Svo er þessu blandið saman við pasta.

New York Broccoli Pizza 1 stk. Uppáhaldspizzabotninn1 meðalstór brokkolíhaus1 pk ricotta ostur1 pk mozzarella ostur2 egg4 hvítlauksrif, söxuðsalt, hvítur pipar og annað krydd eftir smekkUppáhaldsgrænmetisáleggið t.d. laukur, sveppir, paprika ofl. Sjóðið brokkolítoppana í 10 mín.  Blandið saman ricotta osti, eggjum, kryddi og hvítlauk.  Smyrjið svo blöndunni jafnt yfir botninn.  Dreifið svo brokkolíinu yfir botninn.  Stráið svo mozzarella ostinum yfir allt saman og svo hinu grænmetinu þar yfir.  (Osturinn má líka vera efst ef vill).

Bakað við 200°C í 25-30 mín.   Ef ricotta osturinn fæst ekki má nota kotasælu í staðinn.

 

 

Pizzabotn a la Inga Sigga

1 bréf þurrger

2-4 dl vatn ( fer eftir hve margir eru í mat)

4 msk matarolía

smá salt

tsk sykur

Hveiti

Aðferð: Ger og vatn sem er hitað volgt sett í skál ásamt sykri og hrært vel saman. Svo er sett matarolía út í. Loks er salt og hveiti sett í og hrært þangað til að það er orðið hnoðunarfært. Hveit er bætt í þangað til að deigið er hætt að festast við puttana. Flatt út og svo er bara að nota það álegg sem maður vill.

Verði ykkur að góðu

Inga Sigga

 

 

Taco pizza

 

Pizzubotn að eigin vali

1 krukka salsa sósa

Nautahakk

1 bréf taco krydd

Maribo ostur

Pizza ostur

Annað álegg að eigin vali, t.d. laukur, sveppir, paprika, svartar ólífur

Hakkið er steikt og kryddað með taco kryddinu, botninn smurður með salsasósunni, maribó osturinn annaðhvort rifinn eða lagður þar yfir í sneiðum.  Svo er hakkinu dreift yfir, svo hinu álegginu, og pizzaosturinn settur yfir.  Bakað við 220° í 25-30 mín

Klukkan
RSS tengill