Matargatið
13.2.2008 05:14:37 / matargatid

Grænmetisréttir

Sæt kartöflustappa með sveppum

Sætar kartöflur

Sveppir

Rjómi

Smjör

Salt og pipar

Sætu kartöflurnar eru soðnar í léttsöltuðu vatni þar til þær eru mjúkar.  Þá eru þær afhýddar og stappaðar, smjöri og rjóma bætt í eftir smekk.  Kryddað með salti og pipar.  Sveppirnir eru sneiddir og steiktir á pönnu í smjöri.  Þeim er svo hrært saman við kartöflustöppuna.

Kúskús með gulrótum og baunum (úr Gestgjafanum)

300 ml kúskús

450 ml vatn, sjóðandi

1 sítróna

3 msk ólífuolía

1 tsk hunang

nýmalaður pipar

salt

200 g gulrætur

1 dós kjúklingabaunir

3-4 tómatar, þroskaðir

1/2 poki salatblanda

75 g salthnetur

Setjið kúskúsið í stóra skál, hellið sjóðandi vatni yfir, hrærið með gaffli, breiðið plastfilmu yfir skálina eða leggið lok á hana og látið standa í 5 mínútur.  Kreistið safann úr sítrónunni og þeytið olíu, hunang, pipar og salt saman við hann.  Hellið blöndunni yfir kúskúsið og hrærið með gafflinum.  Rífið gulræturnar gróft, hellið leginum af kjúklingabaununum og skerið tómatana í bita.  Blandið þessu saman við, ásamt salati og salthnetum.  Smakkið, bragðbætið með pipar, salti og sítrónusafa eftir þörfum og berið fram.

Grænmetisbakstur a la Rakel

Blómkál

Spergilkál

Gulrætur

Kartöflur

Laukur

1 pk fetaostur m/ sólþurrkuðum tómötum

Grænmetið nema laukurinn skorið niður og gufusoðið þar til það er næstum tilbúið, þá er því skutlað í eldfast mót.  Laukurinn skorinn gróft niður og raðað með í mótið.  Fetaostinum og olíunni dreift yfir grænmetið, bakað í ofni í ca 10-15 mín við 200°C eða þar til fetaosturinn er farinn að bráðna og laukurinn orðinn mjúkur.  Borið fram með kotasælu og grófu brauði.

Grænmetislasagne 

2 msk ólífuolía

1 stk hvítlauksrif

1 stk. ferskt cilialdin

1 stk gulrót

1 stk stór laukur

1 stk rauð paprika

1 stk eggaldin

2 stk kúrbítur

300 gr. sveppir

2 tsk oregano

2 tsk marjoram

2 tsk paprikuduft

smá sjávarsalt og nýmalaður pipar

3 msk tómatmauk

2 dósir niðursoðnir tómatar

2 dósir kókósmjólk

200 g rifinn ostur

kotasæla (sojaostur)

 

Þetta er líklega einn þekktasti grænmetisrétturinn.

Aðferð:Pressið eða saxið hvítlaukinn smátt. Skerið chili í tvennt, fræhreinsið og skerið í litla bita. Afhýðið gulrót, nema hún sé lífrænt ræktuð og skerið í litla strimla. Skerið paprikuna í tvennt, fræhreinsið og skerið síðan í 1 x 1 cm bita. Skerið að lokum sveppina í fernt. Hitið olíu í potti eða í víðri pönnu. Setjið niðurskorið grænmeti á pönnuna og látið mýkjast í um 5 mín. Kryddið, bætið tómatmauki og niðursoðnum maukuðum tómötum útí og sjóðið í 15-20 mín. Hitið ofninn í 200°c og blandið saman (sojaosti) kotasælu og kókosmjólk. Takið fram eldfast mót, smyrjið það og fyllið í þessari röð: 1 lag  fylling, 1 lag lasagneplötur, 1 lag af kókosmjólk og kotasælu. Endurtakið tvisvar sinnum og setjið síðan inn í ofninn og bakið við 200°c í 30 mín. Berið fram með grænmetissalati og pestó.
Klukkan
RSS tengill