Fitulítil súkkulaðikaka 1 bolli eplamauk225 g ávaxtasykur (ég nota 115 g xylitol)2 egg1 eggjahvíta200 g spelti (eða heilhveiti)1 tsk lyftiduft3 msk kakó3/4 dl mjólk1 dl sjóðandi vatn 1. þeytið saman eplamauk og ávaxtasykur. Bætið eggjunum við.2. Sigtið saman spelti, lyftidufti og kakói og bætið eplamauksblönduna smátt og smátt ásamt mjólkinni. 3. Heitu vatni skellt út í síðast og hrært eins og þarf4. Bakið við 180°C í 50 mín. Súkkulaðikrem 2 msk kakó1 banani1 msk mjólk1 msk vanilludropar2 msk sósujafnarismá kaffi 50 g rjómaostur. 1. Blandið öllum hráefnum saman og kælið í smá stund2. Dreifið vel yfir botninn á kökunni.
Tvílit súkkulaðikaka 200 g smjör 4 msk síróp , ljóst 200 g súkkulaði , dökkt 1 l Rice Krispies 200 g súkkulaði , hvítt 75 g jarðhnetur , grófsaxaðar
Leiðbeiningar
Helmingurinn af smjörinu og sírópin settur í pott. Hitað gætilega og hrært þar til smjörið er bráðið og blandan slétt. Þá er potturinn tekinn af hitanum, dökka súkkulaðið brotið í bita, sett út í og hrært þar til það er bráðið. Rúmlega helmingnum af Rice Krispies-inu hellt saman við og hrært.
Hellt í álpappírsklætt, ferkantað mót (um 20x30 cm) eða nokkuð stórt tertumót, sléttað og kælt. Afgangurinn af smjörinu og sírópinu bræddur á sama hátt og hvíta súkkulaðið brætt í blöndunni. Afganginum af hrísnum hrært saman við ásamt jarðhnetunum og hellt yfir dökku blönduna. Sléttað og kælt þar til kakan er stíf. Ef hún er í ferköntuðu formi er hún skorin með beittum hníf í litla ferninga eða þríhyrninga og borin fram þannig.
Súkkulaðiostakaka: 110 gr. mulið hafrakex 75 gr. bráðið smjör
400 gr.Rjómaostur ( 1 askja )við stofuhita. 5 msk. rjómi 1 bolli sykur 1/2 bolli kakó 1/2 tesk. kanill 3 egg Hafrakex og smjör er hrært vel saman og sett í botninn á lausbotna kökuformi. Gott að smyrja formið að innan með feiti. Bakað inní ofni við 180 gráður í 8 mín. tekið út úr ofninum og kælt örlítið. Rjómaostur og rjómi er hrært vel saman, því næst er sykur, kakó og kanill sett útí og síðast eggin, hrært allt saman í ca. 2 mín. Blöndunni hellt yfir hafrakexbotninn og sett í ofninn ( 180°C ) og bakað í ca. 25-35 mín. Kakan lyftir sér vel í ofninum þess vegna verða að vera háar brúnir á forminu, en það er eðlilegt að hún falli fljótlega eftir að hún er tekin út. Skreytt með þeyttum rjóma og súkkulaðispæni.
Bláberjaskyrterta
Botn: 200 gr smjör ósaltað 1 pakki af hafrakexi Smjörið brætt og kexið mulið og svo er það sett í botninn á djúpu formi Fylling: 1 lítil dós bláberjaskyr 200 grömm rjómaostur Peli af rjóma hálfur bolli flórsykur (má sleppa) Rjómi þeyttur og settur til hliðar. Rjómaostur og skyr þeytt kekkjalaust og svo er rjómanum hrært varlega saman við. Svo er bláberjum, bláberjasultu eða bláberjagraut smurt ofan á. Kælið í 4-6 klst. Ath. rosa gott að gera kökuna en ekki smyrja ofan á hana og setja hana í frysti, svo taka hana upp og láta hana þiðna í smá stund og skella svo ofan á hana.
Rice Crispies Kaka
200 gr. Ljóst súkkulaði 200 gr. dökkt súkkulaði 4-5 msk síróp 200 gr. smjörlíki 1-1 og hálfur lítri Rice Crispies Aðferð: Allt nema rice sett í pott og brætt saman, tekið af hitanum og rice sett við. Sett í form og látið í ísskápinn. Mjög gott að hafa ljósan botn undir og setja svo gúmmilaðið ofan á. Vinsæla kakan hennar Hönnu 1 ½ glas sykur2 glös mínus 2 msk hveiti1 glas mjólk8-9 tsk kakó1 ¼ tsk lyftiduft½ tsk natron2 egg150 gr brætt smjörlíki1 tsk salt Egg og sykur þeytt saman og hinu svo blandað útí og þeytt. Bakað við 200°C Krem 2 ½ bolli flórsykur2 msk brætt smjörlíki½ bolli kakó6 msk sterkt kaffipínu salt Flórsykur + kakó sigtað, hært með kaffi. Salt sett og að lokum smjörlíkið. Guðdómlegt Gums Botnar:4 eggjahvítur 200 gr sykur 1 tsk lyftiduft 100 gr súkkulaði brytjað 1/2 - 1 bolli salthnetur 1/2 bolli döðlur ( má sleppa)
Fylling:1 peli rjómi 150 gr súkkulaði rúsínur 50 - 100 gr salthnetur
Krem ofaná:4 eggjarauður 60 gr flórsykur 100 gr súkkulaði 50 gr smjörlíkiMeðhöndlun:Kaka: Eggjahvítur og sykur stífþeytt. Restinni bætt í varlega með sleif.
2 botnar bakað í 30-40 mín í 170°C
Fylling: Rjóminn þeyttur og restinni bætt útí. Sett á milli botnanna.
Krem ofan á: Eggjarauðurnar og flórsykurinn er blandað saman og hrært. Súkkulaði og smjörlíki er brætt saman svo er öllu blandað saman og sett ofaná. Geggjuð skyrterta 1 stór pakki homeblest 100 gr smjörvi (bræddur) 1 stór dós vanilluskyr 1 peli rjómi, þeyttur 2 egg 2 dl sykur (vanilludropar, má sleppa ef vill) 12 blöð matarlím ½ dl mjólk Hlaup ofan á (jarðaberja) Botn: kexið er mulið niður og blandað saman við bráðið smjörið, þrýst í botninn á formi/móti. Blanda saman skyrinu, eggjunum, sykrinum og vanilludropunum, allt saman við þeytta rjómann. Bleyta upp matarlímið í skál yfir vatnsbaði, svo er mjólkinni blandað varlega saman við matarlímið og svo saman við skyrblönduna. Blanda er svo sett ofan á botninn og í kæli. Hlaupið er útbúið eftir leiðbeiningum á pakkanum, sett ofan á kökuna þegar það er orðið kalt.
Norsk daimísterta 3 eggjahvítur 2 dl sykur 1 dl saxaðar möndlur Eggjahvítur og sykur þeytt vel saman og möndlunum bætt saman við. Sett í hring á bökunarpappír á plötu og bakað neðst í ofninum við 180°C í 20-30 mín. Krem: 1 peli rjómi, þeyttur 3 eggjarauður ¾ dl sykur 1 stórt daim saxað Eggjarauður og sykur þeytt vel saman, svo er þeytta rjómanum og daiminu blandað saman við. Kremið er síðan sett ofan á kalda kökuna og hún svo sett í frysti.
Eplapæ
200 grömm sykur 200 grömm hveiti 200 grömm smjörlíki 1-2 msk kanill 2-4 epli afhýdd og skorin í þunnar sneiðar Aðferð: Hveiti, sykur og smjörlíki sett í hrærivél og hnoðað saman. Svo er 2/3 hluta sett í botninn á bökuformi og kanil stráð yfir og eplum þar ofan á og svo er rest af deginu mulið yfir. Bakað við 180 gráður í 30-40 mín. Alveg rosalega gott með vanilluís. ATH. ef þið setjið kanilinn ofan á, brennur hann! Verði ykkur að góðu! Inga Sigga Gulrótakaka 2 bollar hveiti2 tsk lyftiduft½ - 1 tsk kanill½ - 1 tsk salt2/3 bollar matarolía½ bolli apríkósumarmelaði1 bolli púðursykur1 ½ tsk natron3-4 gulrætur raspaðar fínt2 egg1 tsk vanillusykur Öllu nema olíu, eggjum, marmelaði og vanillusykri blanda saman og þeytt vel. Hinu er svo blanda útí og þeytt afturJ Bakað við 175-200°C í 20 mín. 200 gr súkkulaði og 1 - ½ tappi matarolía brætt saman og sett ofan á kökuna. Borin fram með þeyttum rjóma eða ís. MARS-OSTAKAKA
1/2 pk. hafrakex eða makkarónukökur 300 gr. rjómaostur 200 gr. flórsykur 1/2 ltr rjómi 5 mars súkkulaði Jarðaber, kiwi,bláber eða vínber
Mylja kex og makkarónukökur og setja í fat (gott að bræða dálítið smjör og hella yfir kökurnar ekki nauðsynlegt) Þeyta saman ost og flórsykur Taka 1 dl. af rjóma frá þeyta síðan restina af rjómanum og blanda saman við ostahræruna, brytja 3 mars-súkkulaði og setja út í, þessu síðan hellt yfir botninn.
Ofan á
2 mars-súkkul. og 1 dl. af rjóma brætt saman og hellt yfir kökuna.
Hyljið síðan með brytjuðum ávöxtum.
Hjónabandssæla 2 bollar hveiti 1 bolli púðursykur 1 tsk natron 250 grömm smjörlíki brætt 2 bollar haframjöl Einfalt, bara allt hrært saman, 3/4 af deiginum þrýst í smurt kringlótt form, rabbabarasultu dreift yfir og svo rest af deiginu molað yfir. Bakað við 175 í 40-50 mín
Skúffukaka a la Heiðar 3 bollar hveiti 2 og hálfur bolli sykur hálfur bolli kakó 2 tsk lyftiduft 1 tsk hjartasalt 1 tsk salt 2 bollar mjólk 100 grömm smjörlíki brætt 2 egg Allt blandað saman og sett í skúffu, bakað við 180 í 20-25 mínútur.
Alveg guðdómlegir kanilsnúðar 500 gr. hveiti 200 gr sykur 250 gr. smjörlíki 1/4 tsk lyftiduft 1/4 tsk hjartasalt 3 egg Fylling: 7 msk sykur 1 msk kanill Aðferð: Allt er blandað saman og unnið rólega í hrærivélinni með hnoðaranum. Til að minnka sykurmagnið, nota ég oft svona 50 -100 grömm og nota þá hrásykur á móti og einnig sett heilhveiti með. Á milli sett bara hrásykur eða þá strásætu með kanil. Stundum blanda ég saman strásætu með smá af sykri og kanil. Það fer eftir hvað ég á til. Svo er þetta flatt úr. Munið að það þarf þónokkuð hveiti til að hnoða það upp með áður en það er fletjað út. Svo er deigið flatt úr í ca. ferhyrning, fyllingu stráð yfir og svo rúllað upp. Skorið í 1-1.5 cm bita og raðað á bökunarpappír á plötu. Bakað við 180 gráður í ca. 25 mín.
Alveg æðislegar skonsur nánast sykurlausar Þessi er úr hausnum á mömmu 2 bollar hveiti 2 egg 1 msk lyftiduft 1 msk sykur (má minnka eða sleppa) Mjólk Öllu blandað saman og mjólkinni bætt í þangað til að hræran en orðin álíka þykk og venjuleg sósa. Bakið svo á pönnu. Verði ykkur að góðu! Kveðja Inga Sigga |