Matargatið
09.01.2008 19:03:15 / matargatid

Gleðilegt ár

Hæ allir

Þá er komið árið 2008 og nú er ærið tilefni til að setja inn áramótamatinn. Setti inn nýjan flokk sem heitir kalkúnn. Þar setti ég inn fyllinguna, sósuna, aðferðina við að elda kalkún og einnig er þar inni réttur sem á sérstaklega vel með kalkún. Spurning um að setja hann inn í meðlæti líka, geri það við tækifæri. Hvet alla aðila að þessari síðu að setja inn áramótauppskriftirnar og einnig ef einhver hefur prufað nýtt í kringum jólin.

Kalkúnninn bragðaðist mjög vel og sósan ein og sér hefði verið hægt að borða sem aðalrétt. Hún alveg bráðnar upp í manni.

Kveðja Inga Sigga


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 21:46:51 / matargatid

Skólanestið

Var að búa til nýjan flokk hjá okkur, "Hugmyndir að skólanesti" og skellti inn einni hugmynd.  Veit að þú varst að spá í að koma með hugmyndir að nesti um daginn Inga S.  Mangóbroddgölturinn er reyndar ekki mín orginal hugmynd, sá þetta á námskeiði sem ég fór á um daginn og svo er líka uppskrift að grilluðu mangói á http://www.cafesigrun.com, ég fékk lánaðann hluta af textanum þar, hlakka líka til að prófa þann rétt.  Er með mangóæði þessa dagana:)

 Kveðja,

Rakel


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2007 21:28:56 / matargatid

Mexíkósk súpa!!!

Ég tók súpuáskoruninni og setti inn uppskrift að kröftugri mexíkóskri súpu....fínt að ylja sér á þessari í haustveðrinu:)

Rakel


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 22:03:21 / matargatid

Þetta er allt að koma

Hæ hæ

Er búin að flytja að ég held allar uppskriftirnar yfir og þá er að bæta meira við. Endilega bendið á einhverja tengla. Á eftir að flytja gömlu tenglana yfir en þetta kemur allt saman þegar ég hef tíma

Kveðja

Inga Sigga


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 08:37:51 / matargatid

Flott hjá þér Rakel

hæ hæ 8)

Nú fer veturinn að ganga í garð og nú skora ég á lesendur að senda okkur uppskriftir að djúsí súpum til að ylja sér á.

Ég ætla að reyna að hjálpa Rakel við að flytja þetta allt yfir en við vorum komin með mikið safn uppskrifta á gamla staðinn.

Kveðja Inga Sigga:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 23:46:53 / matargatid

Matargatið flutt

Hæhæ,

 Þar sem að folk.is vefurinn verður ekki uppfærður meira þá fannst okkur Ingu S. tími til kominn að finna annan stað fyrir matargatið okkar.   Ég hélt reyndar að það ætti að vera hægt að flytja færslurnar frá folk.is hingað yfir, en það virðist ekki vera hægt.  En ég vinn í því á næstunni að færa uppskriftirnar hingað.

Kveðja,

Rakel


» 0 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
RSS tengill